Sýnir

Fyrir ári síðan fékk ég nætursýnir, ekki eina heldur fjórar. 'Eg sit í gluggakistu gríðarstórar byggingar og horfi inn. Fyrir innan sé ég langar raðir af borðum með hvítum borðdúkum og prúðbúið fólk í þúsundatali sitjandi við borðin , ég segi, hvað er verið að sýna mér? Um leið er mér svarað af engli þetta eru þeir sem hafa látið lífið fyrir trú sína á Jesú Kristi og eru nú að taka þátt í hinni dýrlegu veislu lambsinns, ég lít niður á föt mín og sé að þaug eru skítug og ljót föt sindaranns. 'I næstu sýn er ég kominn inn í þessa stóru byggingu. Mér var ekki sýnt hvernig byggingin liti út að innan heldur var allt svart og mikill fólksfjöldi inni sem þrengdi að mér á alla vegu sem svartir skuggar. Líða mín var ólýsanleg, ég var í alsælu og fannst vera kominn til himnaríkis. 'Eg fann hvergi til og fannst ég vera fullur af lífi og orku ( ég er 64 ára öryrki með allskonar kröm eftir veikindi og slis ). Fljótlega sé ég dóttur mína koma til mín sem einn skuggana en get þó greint andlitsfallið, ég spyr hana hvar eru hin? Þarna á ég við hin börnin, barnabörn, eiginkona, vinir og ættingar.En við eigum 4 börn og 3 barnabörn. Hún savarar mér og segist ekki hafa fundið þaug. Þarna fæ ég einhverjar þá verstu frétt sem hægt er að hugsa sér allir glataðir og verða mér ekki til gleði eða endurfunda á himnum. Þarna kom merking þessar sýnar,gleðin og alsælan var reynd frammi fyrir þessum hræðilegu fréttum og þar sem fréttin hafi engin áhrif á gleði mína eða alsælu var mér sýnt að á himnum getur ekkert spillt þessari tilfynningu, á sama tíma leit ég niður og sá að ég var klæddur í hin skínandi hvíta réttlætiskirtil Jesú Krists. 'I næstu sýn sá ég musteri stórt og mikið eins og stendur á Akrapólishæð í Aþenu. Musterið vað alelda og stóð eldurinn hátt upp í loftið en það var líka annarskonar eldur og sá flæddi eins og djúp á út og niður þrepin úr musterinu. 'Ut úr þessu eldhafi sá ég koma fljúgandi faró standi á tveggjahjóla vagni og tveir hestar drógu vagninn og allt alelda og ógleimanlegur kvalarsvipurinn á faró og hestum er eldurinn vann á þeim er hann flaug yfir höði mínu til vinstri og leystist upp.'A eftir komu síðan líkneski í líkingu karla og kvenna og á sama hátt logandi og flugu yfir höfuð mitt og hurfu til hægri og leystust upp. Aftur spyr ég hvað er verið að sýna mér. Þá er sagt við mig og hef ég það orðrétt eftir þessum engli. Þetta eru andar þeirra líkneskja sem fólk hefur gefið anda sinn með tilbeyðslu sinni. Síðasta sýnin. 'Eg er kominn inn í musterið eftir að eldurinn hefur unnið sitt verk. þarna stóð faróinn á vagninum með hestana og öll þaug líkneski sem ég sá koma fljúgandi út úr eldinum nú köld og líflaus.bogdan pictures3 286

.grikkland 091


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband